Lyre's

Í mörg ár vann drykkjarframleiðandinn Lyre‘s að því að gera hið ómögulega mögulegt – að gefa fólki frelsi til að fá sér góðan drykk á sínum eigin forsendum. Þannig varð til heil vörulína drykkja sem hefur alla eiginleika sterkra, klassískra drykkja, en inniheldur ekkert áfengi. Aðeins allra besta hráefnið frá öllum heimshornum ratar í uppskriftir Lyre‘s í leit að hinu fullkomna bragði en þar hefur þeim tekist einstaklega vel til. Með Lyre‘s má laga drykki með minna áfengismagni eða hafa þá hreinlega 0% allt eftir því hvað hentar hverjum og einum og tilefninu sjálfu. Það er engu til sparað í bragði og upplifun en í ofanálag helst hugsunin skýr og möguleikar morgundagsins eru endalausir þrátt fyrir góða skemmtun kvöldið áður. Hægt er að búa til 95% af vinsælustu kokteilum í heimi með Lyre's vörunum. 

Sölustaðir:

Dimm | Búrið | Litla hönnunarbúðin

Í Krónunni er hægt að fá vinælustu Lyre's drykkina í 200 ml flöskum.

http://www.dimm.is
http://www.verma.is
http://www.mimosa.is

Lyre's kokteilar eru einnig í boði á betri börum og veitingastöðum landsins.