Lucky Saint

Lucky Saint

Bretar taka bjórinn sinn alvarlega. Einn tiltekinn Breti, Luke Boase, tók þó áskoruninni um að búa til frábæran 0% bjór enn alvarlegar, hætti í vinnunni sinni og hellti sér út í bruggvísindi og þrotlausa tilraunastarfsemi. Markmiðið var ekki síður að breyta hugsunarhætti fólks til 0% bjórs, allt frá tilhugsuninni, til drykkjarins sjálfs og loks upplifunarinnar. Og svo tókst það! Með úrvalshráefnum, hágæðavatni, einstakri nýrri bruggaðferð við að búa til áfengislausan bjór - og smá heppni - varð Lucky Saint 0% ósíaður lagerbjór að veruleika.

329 kr