Áfengislaus lagerbjór á krana í fyrsta sinn á Íslandi

0% drykkir njóta sívaxandi vinsælda og áfengislausi lagerbjórinn Lucky Saint hefur slegið í gegn hjá landsmönnum í sumar. Nú er sá hinn sami mættur á krana en þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á áfengislausan bjór með þeim hætti hér á landi.

Það var djassbarinn Skuggabaldur við Austurstræti sem reið á vaðið. „Lucky Saint áfengislausi bjórinn er gríðarlega vinsæll svo við erum mjög ánægð með að geta nú boðið okkar fólki upp á hann á krana. Við höfum verið með gott úrval af 0% bjórum og þetta er því kærkomin viðbót,‟ segir Jón Mýrdal, eigandi Skuggabaldurs.

Frá því að Akkúrat hóf að bjóða veitingastöðum, börum og hótelum upp á úrval af vönduðum 0% drykkjum hefur góður áfengislaus lagerbjór á krana verið efstur á óskalista viðskiptavina. Það er því mikið gleðiefni að geta nú boðið viðskiptavinum Akkúrat upp á þennan valmöguleika.

Sólrún María Reginsdóttir, hjá Akkúrat, segir þetta skref vera stóran hluta af hugsjóninni á bak við Akkúrat. „Það er þessi hugmynd um að allir getir verið með og notið þess að drekka góðan drykk við skemmtileg tilefni. Okkar markmið er að bjóða þeim stóra hópi fólks sem farið er að velja 0% drykki, eingöngu eða stundum, upp á alvöru valkost. Það er mikilvægt skref í þá átt þegar fólk hér á landi getur nú fengið áfengislausa bjórinn sinn í fallegu glasi úr krana eins og hinir, skálað og notið lífsins. Þetta var akkúrat það sem vantaði!” segir Sólrún María.

Lucky Saint þarf vart að kynna en hann hefur hlotið verðlaun um heim allan sem besti áfengislausi bjórinn. Innihaldsefnin eru aðeins fjögur; vatn, bygg, ger og humlar og bjórinn er ósíaður. Þetta ferli og val á hráefni þýðir að engin þörf er á að bæta við gervi- eða sætuefnum. Hann er þess vegna ekki bara einstaklega bragðgóður heldur er sykurinnihaldið aðeins þriðjungur af því sem flestir áfengir bjórar innihalda, með einungis 53 kaloríum í hverjum bjór.

Skál!