Loksins sjáum við rautt!
Viðtökurnar við áfengislausu vínunum frá Oddbird hafa verið gríðargóðar. Hingað til hafa freyðivín, rósavín og hvítt slegið í gegn við hvers konar fögnuði og uppákomur en líka með góðum mat eða einfaldlega í huggulegri stund eftir vinnu. En hvað með rauðvínsfólkið?
„Rauðvínsfólkið hefur verið svolítið út undan en við erum afar meðvituð um þá miklu eftirspurn sem er eftir góðu áfengislausu rauðvíni. Að okkar mati hafa hins vegar engir framleiðendur haft til að bera það sem við sækjumst eftir í góðu rauðvíni – fyrr en núna. Fyrsta sendingin af GSM rauðvíninu frá Oddbird seldist á methraða, enda vandað og ótrúlega gott, og sú næsta er að stefna sömu leið. Nýjasta vínið frá Oddbird er einmitt líka rauðvín, Addiction, sem er tannínríkara en GSM og fyllra, rúnað og bragðmikið og við hlökkum mikið til að sjá hvernig það fellur í kramið hjá viðskiptavinum okkar. Það fer frábærlega vel með mat en er líka bara dásamlegt í kósý. Það er svo ánægjulegt að geta loksins líka boðið upp á rauðvín sem öll geta notið, óháð því hvort þau drekka áfengi eða ekki,“ segir Sólrún hjá Akkúrat sem flytur inn Oddbird vínin.
GSM og Addiction eiga það sameiginlegt að vera einstaklega ljúffeng en eru þó ólík. GSM er silkimjúkt og þroskað vín frá Saint-Chinian í suður Frakklandi. Hér eru og sýra og ávaxtatónar ríkjandi en vínið er unnið úr Grenache, Syrah, Mourvèdre og Carignan þrúgum sem býr til margslungið bragð sem endar á samspili af ljúfum ávaxtakeim og skerpu. Addiction mætir ákveðnara á svæðið. Hér er á ferðinni 100% lífrænt vín frá Quintana del Pidio á Spáni og einstakri víngerðartækni er beitt til að ná fram því allra besta úr þrúgunum til að skapa karaktermikið vín sem er að springa úr ávöxtum, ferskleika og margslungnu kryddbragði svo það hentar sérlega vel með góðum mat.
Tvær sterkar innkomur frá Oddbird sem hefur sýnt það og sannað að áfengislausu vínin þeirra eiga svo sannarlega erindi á íslenskan markað, þeim sem ekki drekka áfengi til mikillar og áframhaldandi ánægju.